Lýsing
Kertin frá ILM eru handgerð úr 100% soja vaxi, fyrsta flokks ilmkjarnaolíum og náttúrulegum bómullarkveik. 10% afsláttur fæst af næstu ILM kertakaupum ef glasi undan kerinu er skilað inn í Vonarstræti.
Ilmurinn no. 28 er einstaklega ferskur. Frískandi ilmur sem samanstendur af sítrusávöxtum, basil og myntu, kertið er lagskipt:
Toppur – límóna, sítróna, basilikum-mynta, amber
Miðja – mandarína, blóm
Botn – mosi, patchouli
Hver gerð af kerti er mótuð með það í huga að búa til töfrandi umhverfi þar sem unaðslegur ilmur og fullkomin brennsla mætast.
Af hverju ILM kerti?
– Engin eiturefni og minna sót en af t.d. parafínkertum
– Hægt að skila inn glasinu sem kertið kemur í þegar kertið klárast og er glasið nýtt í frekari kertagerð.
Efni, Innihald og framleiðsla
– Áætlaður brennslutími: 50 klst
– 100% sojavax, ilmkjarnaolíur og bómullarkveikur
– Kemur í glerglasi
– Umbúðaaskja úr pappír
– Hannað og framleitt á Íslandi
Notkun og umhirða
–Til að viðhalda jöfnum og fallegum loga á kertinu og koma í veg fyrir reyk þá er mælt með því að snyrta þráðinn niður í 6 mm áður en kveikt er á kertinu í fyrsta skipti. Endurtaka síðan í hvert skipti sem kveikt er á kertinu.
– Til að viðhalda jafnri brennslu á kertinu er mælt með því að leyfa kertinu
að brenna þar til allt yfirborð er brætt áður en slökkt er, eða í u.þ.b. 1 klst.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.