Lýsing
Mýkjandi og nærandi hársápustykki úr léttum olíum sem smjúga auðveldlega í hárið og hársvörð. Olíurnar hjálpa til við að vernda hársvörð og hár frá skemmdum. Hentar flestum hárgerðum.
Olíurnar í hársápustykkinu innihalda B-vítamín, kalsíum, E-vítamín, prótein og fítusýrur. Gott fyrir hár sem vill flækjast og er úfið, gerir það silkimjúkt og glansandi og veitir vörn.
Juliet Rose rekur lítið sápugerðarfyrirtæki í Bretlandi þar sem hugað er að umhverfisþáttum í öllum þáttum framleiðslunnar.
Hvers vegna hársápustykki frá Juliet Rose?
– Að nota hársápustykki sem koma umbúðalaus eða í pappaumbúðum dregur úr notkun einnota umbúða
– Með því að kaupa hársápustykki frá Juliet Rose styrkir maður lítið handverksfyrirtæki
Efni, umbúðir og framleiðsla
– Koma í tveimur stærðum, ca. 60 g. og 120 g.
– Innihaldsefni: Organic almond oil, Moroccan argan oil, castor oil, Macadamia nut oil, sea salt, bay laurel oil, kaolin clay, aloe vera, watercress extract, essential oils
– Engin tilbúin litarefni, súlföt, paraben, þalöt, og cruelty-free.
– Cruelty Free
– Engar umbúðir
– Framleitt á Bretlandi
Notkun og Umhirða
– Bleyttu hársápustykkið og nuddaðu milli handanna svo myndist froða. Þvoðu hárið með froðunni eða nuddaðu stykkinu beint í hárið. Skolaðu vel.
– Passaðu að láta hársápustykkið standa á þurrum stað sem safnar ekki vatni þegar það er ekki í notkun. T.d. með því að láta það standa á sápudiski eða lúffa svampi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.