Lýsing
Baðsalt sem fær þig til að slaka vel á líkama og sál, búið er til af ástríðu úr hreinu sjávarsalti, byggi, krækiberjum.
Fyrirtækið Verandi endurvinnur hágæða hráefni úr íslenskum matvælaiðnaði og landbúnaði sem annars færi til spillis (e. upcycle).
Af hverju baðsalt frá Verandi?
– Verandi byggir á hringrásarhagkerfinu í sinni framleiðslu þ.e. að endurnota, gera við, endurnýja og endurvinna. Hugað er að umhverfinu á öllum stigum framleiðslunnar.
– Í framleiðsluna er nýtt bygg og krækiber sem annars hefði líklega verið hent
– Innlend framleiðsla
Efni, umbúðir og framleiðsla
– 500 g.
– Innihald: Sodium Chloride (Pure Sea Salt), Recycled Hordeum Vulgare (Organic barley), Recycled Empetrum Nigrum (Organic Crowberry), Vitus vinifera (Grapeseed Oil), Lavandula Angustifolia (Lavender Essential Oil), Coriandrum sativum (Coriander Seed Essential Oil)
– Byggið sem notað er í framleiðsluna, kallast bygg-ryk, hráefni sem verður eftir við framleiðslu á byggi.
– Krækiberin koma frá bænum Völlum þar sem búskapurinn er lífrænn. Krækiberin eru endurunnin því þau eru afgangar sem falla til vegna framleiðslu á krækiberjasultu.
– Án PEG, parabena, súlfata og litarefna
– Varan er ekki prófað á dýrum
– Umbúðir eru úr 100% endurunnu plasti
– Framleitt á Íslandi
Notkun og umhirða
– Setjið handfylli (um 50-100 gr.) af baðsalti í heitt baðið. Komið ykkur fyrir, slakið á og njótið.
– Skolið líkamann og baðkarið vel.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.